Skip to product information
1 of 1

Soundbath – þegar jörð og kristall mætast ✨

Soundbath – þegar jörð og kristall mætast ✨

  Með Ingunni & Tinnu

 

Í þessu einstaka hjóðferðalagi sameina Ingunn og Tinna kraft tíbeskra skála og kristalskála í nærandi hljóðferð sem styður djúpa slökun, jarðtengingu og innra jafnvægi.

 

Ingunn vinnur með líkama, taugakerfi og meðvitund út frá eigin lífsreynslu og djúpri þekkingu á því hvað skapar raunverulegt öryggi í líkamanum. Í tónheilun sinni notar hún tíbeskar skálar sem tala beint inn í vefi, taugakerfi og djúp lög upplifunar. Tónarnir eru jarðtengjandi, hlýir og mýkjandi – og hjálpa líkamanum að sleppa tökum á spennu og fara úr álagi yfir í hvíld.

 

Tinna hefur starfað sem þjálfari og jógakennari í um 20 ár. Ferðalag hennar inn í tónheilun varð til í kjölfar djúprar lífsreynslu, þar sem kristalskálarnar urðu leið til dýpri skilnings á orkuflæði, hljóðheilsu og tengingu við sjálfa sig. Hún vinnur af næmni og nærveru og skapar öruggt rými þar sem fólk getur slakað á, losað um tilfinningar og fundið innri frið.

Saman mynda tíbesku skálarnar og kristalskálarnar samhljóm milli jarðar og himins. Lágar tíðnir jarðtengja líkamann á meðan tærar kristaltíðnir opna rými fyrir flæði, skynjun og tilfinningalega losun.

 

í þessari hljóðferð:

Hægja tónarnir á heilabylgjum og færa okkur í alfa og theta

Parasympatíska taugakerfið virkjast og líkaminn fær að fara í djúpa hvíld

Öndunin verður hægari og dýpri af sjálfu sér

Streita og uppsöfnuð spenna losnar

Vagustaugin styrkist og innra jafnvægi eykst

 

Hljóðbylgjurnar flæða í gegnum líkama og orkukerfi, mýkja upp spennu í vöðvum, bandvef og taugakerfi og styðja við endurheimt á ró, öryggi og samræmi.

 

Þetta er stund til að leggja allt frá sér.

Stund til að hlusta.

Stund til að vera – nákvæmlega eins og þú ert.

Tíminn er 90 mínútur

Verð 7500 

Staðseting Hátún 6B 

 

Regular price 7.500 ISK
Regular price Sale price 7.500 ISK
Sale Ekki í boði / Fullbókað

Out of stock

Tímasetning
View full details

Hæ ég heitir Ingunn & er þjálfari hjá Lotus Þjálfun.

Er með yfir 20 ára reynslu og menntun á sviði þjálfunar og verkjameðferða.

Ég get hjálpað þér að ná þínum markmiðum og verða verkjalaus. Býð upp á hóp- og einkatíma.

Hafa samband