Skip to product information
1 of 1

Qigong fyrir daginn þinn.

Qigong fyrir daginn þinn.

 

 

Komdu með í rólega og nærandi stund í hádeginu þar sem við tökum okkur hlé og snúum  inn á við.

Í þessari mjúku Qigong æfingu gefum við okkur rými til að losa um það sem hefur safnast upp , þreytu, þyngsli, spennu, streitu eða óróleika og leyfum líkama, huga og hjarta að mýkjast og opnast.

Með einföldum hreyfingum og meðvitaðri öndun bjóðum við ferskri, lifandi orku að flæða um okkur og næra okkur að innan.

Þú tekur með þér einfaldar og áhrifaríkar æfingar sem þú getur gripið í yfir daginn og finnur hvernig meiri ró, léttleiki og gleði fær að fylgja þér áfram.

Æfingin er opin öllum og engin reynsla nauðsynleg.

Þú getur verið standandi, sitjandi eða liggjandi og jafnvel fylgt hreyfingunum í huganum ef líkaminn kallar á kyrrð.

Um Qigong

 Qigong er forn og djúp æfing sem á rætur sínar í Kína og er ein af grunnstoðum hefðbundinnar kínverskrar læknisfræði.

Í Qigong mætast mjúkar, meðvitaðar hreyfingar og kyrrð og saman hjálpa þær okkur að muna eftir tengingunni við náttúruna og okkar eigin innri takt.

Þegar við slökum inn í augnablikið byggjum við upp mjúkan styrk í líkamanum, finnum jafnvægi í liðum og orkuflæði og leyfum líkamanum að samræmast án átaks, án þrýstings.

Um Markétu

 Markéta er  Qigong- og jógakennari sem leiðir með hlýju, næmni og nærveru.

Hún vinnur með upplifun og forvitni að leiðarljósi og styður fólk í að tengjast líkama sínum og orku á dýpri hátt ,hvort sem það er til að vinna með verki, kvíða eða kulnun, eða einfaldlega til að lifa með meiri meðvitund, flæði og tilgang.

 

Qigong for Your Day

Join me at lunchtimes for a short, simple Qigong practice to rebalance our energy. Clearing energies such as tiredness, heaviness, physical/emotional tension, stress, or agitation from body, mind, and heart, we’ll allow fresh, healthy energy to circulate and nourish us. You will take away simple movement and breath techniques that you can utilize throughout your day and experience greater ease and joy in your life.

Accessible to all and no prior experience necessary. Practice standing, seated, or lying down visualizing the movement.

About Qigong:

Qigong is an energy cultivation practice originating from ancient China and one of the pillars of Traditional Chinese Medicine. Interweaving intentional movement with periods of stillness, Qigong re-awakens within us the sense of belonging to the natural world. Through relaxing into the present moment, a Qigong practitioner builds soft strength within their body, balances stability and mobility around the joints, and harmonizes any excessive or deficient energies.

About Markéta:

Marketa is a certified Qigong and yoga instructor. Using experiential, enquiry-based approach to teaching, she guides others in applying energy cultivation practices to their daily lives: from managing conditions such as chronic pain/illness, anxiety, or recovering from burnout, to skillfully communicating with others and engaging in meaningful life/work projects

Takmarkað plásstryggðu þér sæti.

 

🗓️ Upplýsingar

Dagsetning: 22.Apríl- 13. Mai 

Tími: 12:00-12:45 Miðvikudagar

Staðsetning: Lotusþjálfun   Hátún 6B

Fjöldi þátttakenda: 12 manns

Verð: 12.000 Kr

Leiðbeinandi 

Markéta Foley

 

 

 

Regular price 12.000 ISK
Regular price Sale price 12.000 ISK
Sale Ekki í boði / Fullbókað

12 laus pláss

Tímasetning
View full details

Hæ ég heitir Ingunn & er þjálfari hjá Lotus Þjálfun.

Er með yfir 20 ára reynslu og menntun á sviði þjálfunar og verkjameðferða.

Ég get hjálpað þér að ná þínum markmiðum og verða verkjalaus. Býð upp á hóp- og einkatíma.

Hafa samband