Fascial Maneuvers
Fascial Maneuvers
Fascial Maneuvers® eru mjúkar og markvissar hreyfingar sem vinna með bandvef líkamans (fasciu). Fascia tengir saman vöðva, liði og önnur líffæri og gegnir mikilvægu hlutverki í hreyfingu, líkamsstöðu og almennri vellíðan.
Líkaminn er ein heild. Þegar bandvefurinn fær að hreyfast frjálst geta vöðvar, liðir og taugakerfi unnið betur saman. Fascial Maneuvers® eru hreyfingar sem hjálpa líkamanum að losa um spennu, bæta hreyfigetu og styðja við náttúrulega getu hans til endurheimtar.
Þegar spenna, álag eða meiðsli hafa áhrif á fasciuna getur það valdið verkjum, stirðleika eða takmörkun á hreyfigetu. Í tímunum eru framkvæmdar markvissar hreyfingar sem miða að því að auka hreyfanleika bandvefsins, draga úr spennu og styðja við eðlilegt flæði og hreyfingu líkamans.
Tímarnir geta meðal annars hentað þeim sem:
- finna fyrir langvarandi vöðva- og liðverkjum,
- upplifa stirðleika eða skerta hreyfigetu,
- vilja losa um spennu sem hefur safnast upp vegna vinnu, íþrótta eða daglegs álags,
- vilja auka líkamsvitund og styðja við almenna vellíðan.
Markmið tímanna er að gefa líkamanum tækifæri til að hreyfast á náttúrulegan hátt, losa um spennu og stuðla að meira jafnvægi, aukinni vellíðan og frjálsari hreyfingu
Tímar fara fram í Lotusþjálfun Hátún 6B
Lengd námskeiðs er 4. vikur
Out of stock
Couldn't load pickup availability
Staðsetning
Staðsetning
Staðseting Svövuhús

Hæ ég heitir Ingunn & er þjálfari hjá Lotus Þjálfun.
Er með yfir 20 ára reynslu og menntun á sviði þjálfunar og verkjameðferða.
Ég get hjálpað þér að ná þínum markmiðum og verða verkjalaus. Býð upp á hóp- og einkatíma.